Veðrið hefur verið að leika við okkur undan farnar vikur. :) Kennarar og börn hafa verið dugleg að fara í göngutúra hér í nágrenni skólans enda greiðfært um allt og snjólétt miðað við árstíma.
...Hópatímarnir hjá okkur eru margvíslegir og alltaf skemmtilegir. Hér er mynd úr einum þeirra þar sem dansinn er stiginn af miklum móð. Börnin elska að dansa og syngja og þá er um að gera að skella sér í dans.
...Í dag byrjar Samskiptalotan sem er þriðja kennslulotan okkar og er í raun eineltisáætlun Hjallastefnunnar. Í þessari lotu eru samskipti æfð í sinni víðustu skilgreiningu. Nemendur læra að virða landamæri annarra og standa saman um jákvæða framkomu og jákvæða hegðun. Þau l...
Haustið hefur alltaf sinn sjarma með sínum fallegu litum. Í síðustu viku fór stúlknahópur í góðan göngutúr eins og svo oft áður. Þær litu við heima hjá hópstjóranum sínum og fengu að kíkja á fallegan ferfætling sem á þar heima og fengu að knúsa hann. <3
...