Innskráning í Karellen
news

X hópar á Slökkvistöðina

31. 05. 2018

Í morgun fóru allir X hóparnir labbandi niður á Slökkvistöð í boði Slökkviliðsins. Það var tekið vel á móti þeim eins og alltaf, fullt af vatni og allir fengu að prufa að sprauta úr risa slöngu og sulla og leika sér. Það voru ekki margir þurrir þegar heim var komið. Boðið var upp á grillaðar pylsur og safa í lokin. Rúsínan í pylsuendanum var svo heimkeyrslan sem var í boði þessarra heiðursmanna. Frábær ferð.:)

© 2016 - Karellen