Innskráning í Karellen
news

Kát eftir fríið :)

03. 08. 2018

Nú er fyrstu vikunni eftir sumarfrí að ljúka. Allir mættu hressir og endurnærðir eftir fríið og er búið að vera mikið fjör hjá okkur. Veðrið hefur einnig leikið við okkur. Aðlögun milli kjarna var nú í vikunni og eins mættu ný börn í skólann í fyrsta sinn. Þetta eru dásamlegir dagar og mikið um að vera í húsinu. Börn og foreldrar á sveimi hvert sem litið er. Við óskum ykkur góðrar helgar og hlökkum til að sjá ykkur á þriðjudaginn eftir versló.

© 2016 - Karellen