Innskráning í Karellen
news

Upplýsingar vegna takmarkana í samfélaginu

30. 10. 2020

Í framhaldi af upplýsingafundi stjórnvalda í dag varðandi takmarkanir í samfélaginu má búast við breyttu fyrirkomulagi á skólastarfi eftir helgina. Fram hefur komið að stjórnvöld munu koma með nánari útfærslu og upplýsingar um takmarkanir á skólastarfi á sunnudaginn.

Við skólastjórnendur munum endurskipuleggja skólastarfið í samræmi við lög og reglugerðir frá stjórnvöldum og um leið og nánari upplýsingar og útfærslur liggja fyrir munum við senda ykkur þær. Við biðjum ykkur um að fylgjast vel með tölvupósti og tilkynningum á heimsíðu skólans sem birtar verða á sunnudagskvöld.


Minnum hvert annað á að við höfum áður tekist á við aðstæður sem þessar og leystum það verkefni vel af hendi. Engin ástæða er til að ætla að annað verði upp á tengingum núna.

Ykkar Alfa og Lína

© 2016 - Karellen