Innskráning í Karellen
news

SKÓLAHALD FELLUR NIÐUR Í DAG, 10. DES. FRÁ KLUKKAN 13:00

10. 12. 2019

Kæru foreldrar

Eftirfarandi skilaboð voru send frá Fræðslusviði núna rétt í þessu:

" Almannavarnir Eyjafjarðar mælast til þess að skólahaldi verði hætt fljótlega uppúr hádegi. Nú liggur fyrir að veðurspár ganga eftir, á mörkunum er að hægt sé að halda aðalleiðum opnum hér innanbæjar og því eru meiri líkur en minni á að þegar vindur eykst þá verði verulegar samgöngutruflanir.

Skólahaldi verður því hætt í dag kl. 13. Gera þarf viðeigandi ráðstafanir til að foreldrar leikskólabarna sæki börn sín fyrir þann tíma. Einnig þarf að koma skilaboðum til foreldra barna á yngsta stigi þar sem það á við. Frístund fellur niður frá sama tíma."


Við mælumst því til þess að börnin séu sótt fyrir klukkan eitt í leikskólann.

Varðandi morgundaginn þá koma upplýsingar um það síðar í dag. Við biðjum ykkur því að fylgjast vel með pósti og heimasíðu skólans.

Kveðja Alfa og Lína

© 2016 - Karellen