Innskráning í Karellen
news

Lota 3, Samskiptalotan

05. 11. 2018

Í dag hefst þriðja lota skólaársins og ber hún nafnið Samskiptalota. Í þessari lotu æfum við samskipti og samvinnuverkefni sem aldrei fyrr. Mikil samvinna í kynjablöndun og eins æfum við okkur í samvinnu milli kjarna, yngri og eldri. Við kennum nemendum að virða landamæri annarra og standa saman um jákvæða framkomu og hegðun og er þessi lota í raun eineltisáætlun Hjallastefnunnar og snýst um félagslega jákvæðni. Lotulyklarnir eru: Umborðarlyndi, hjálpsemi, víðsýni og samstaða.

© 2016 - Karellen