Innskráning í Karellen
news

Jólatrésferð foreldrafélagsins

05. 12. 2018

Þann 9. desember, sem er sunnudagur, ætlar foreldrafélagið að bjóða upp á ferð til að höggva jólatré fyrir leikskólann.

Þau ætla að vera á svæði Skógræktarfélagsins við Þelamörk klukkan 14 á sunnudaginn og þar verður að auki boðið upp á kakó og piparkökur.

Það er um að gera að koma á staðinn og taka þátt í þessu skemmtilega ævintýri.

© 2016 - Karellen