Innskráning í Karellen
news

Útskriftarferð á Hólavatn

23. 05. 2018

Elstu börnin fóru í sína fyrstu útskriftarferð miðvikudaginn 16. maí fram á Hólavatn, gistu tvær nætur og komu heim eftir hádegi þann 18. Í þessari ferð var mikið fjör og nóg að gera enda dásamlegt umhverfið sem við vorum í. Mikil dagskrá var báða dagana, gönguferðir, grill, bátsferðir, Litlu ólympíuleikarnir, náttfataball, kvöldvökur og svo mætti lengi telja. Matseðlar eru sniðnir að þörfum og löngun barna og hjálpar hver hópur til við eldamensku og undirbúning hvers matartíma. Þessi ferð tókst eins og allar undan farin ár alveg glimrandi vel þó gubbupest hafi aðeins litið við hjá okkur í lokin, þá mössuðum við þetta.

© 2016 - Karellen