Nú er Söngvaflóð byrjað. Í fyrravetur kom kennari frá Tónlistarskólanum einu sinni í viku til okkar og söng og spilaði með börnunum á Miðstöð og nú er það byrjað aftur. Þetta er samstarfsverkefni milli Tónlistarskólans og leikskólanna hér í bæ. Ákveðin lög eru æfð milli heimsókna og svo syngja allir af hjartanslist. Frábærar stundir sem allir njóta.