Það er alltaf gott að æfa framsöng og það gerum við hér og höfum gaman af. Börnin fara í púlt, segja nafnið sitt og ýmislegt annað. Brandarar eru líka alltaf vel þegnir. Vinahópar æfa þetta gjarnan saman og svo þarf kennarinn auðvitað að æfa sig líka.